Að nota samfélagsmiðla við leiðsögn á vinnusta
Þeir aðilar sem koma að starfsmenntun og þjálfun til starfa sýna samfélagsmiðlum og annarri tækni sífellt meiri áhuga. Lítill vafi leikur á kostum þess að nýta snjallsíma við þjálfun. Hinsvegar er það undrunarefni hversu lítil þekking og kerfisbundin skráning er til um það hvernig snjalltækni og samfélagsmiðlar geta komið að notum við leiðbeiningu nemenda í vinnustaðanámi.
Í þessum hluta munum við kynna kosti samfélagsmiðla við leiðsögn á vinnustað; hindranir sem við höfum rekist á og hvernig við höfum komist framhjá þeim. Við munum líka benda á hvernig er hægt að nýta samfélagsmiðla þegar við leiðbeinum nemendum í vinnustaðanámi
Í þessum hluta munum við kynna kosti samfélagsmiðla við leiðsögn á vinnustað; hindranir sem við höfum rekist á og hvernig við höfum komist framhjá þeim. Við munum líka benda á hvernig er hægt að nýta samfélagsmiðla þegar við leiðbeinum nemendum í vinnustaðanámi
Kostir við að nota samfélagsmiðla við leiðsögn á vinnustað
- Hægt er að nota samfélagsmiðla við samskipti milli einstaklinga og í hópum til að hvetja til samvinnunáms
- Nemar í mismunandi greinum geta nýtt sér þessa miðla m.a. við nám sem felst í lausnaleit og ígrundun
- Miðlarnir nýta rauntíma samskipti í umhverfi sem nemar þekkja
- Sveigjanleiki samfélagsmiðla gefur möguleika á hröðum og skjótum viðbrögðum sem hjalpar við að halda öllum upplýstum
- Miðlarnir gefa möguleika á að verkefni verða eign fleiri aðila og gefa tækifæri til annars konar námsvinnu en við hefðbundnar aðstæður í skólum
- Miðlarnir hafa tengingar við margvísleg form og framsetningu svo sem myndbönd, myndir, blogg og fleira
- Námið er hægt að búta niður í heppilegar einingar og viðfangsefni sem hægt er að nálgast hvar sem er í heiminum
- Fjarlægðir eru ekki lengur fjárhagsleg hindrun þar sem hægt er að nálgast upplýsingar og vera í samskiptum hvar sem er, hvert sem er
Nú lítum við á mögulega kosti og ýmsar hindranir sem þessir þrír aðilar sem eiga í hlut geta upplifað. Smelltu á myndir af nema, kennara og vinnuveitanda.
Tíu atriði og ábendingar um að nota samfélagsmiðla við leiðsögn á vinnustað
- Verið viss um að þið hafið sameiginlegan skilning á leiðbeiningum og aðferðum sem þið notið þegar verið er að nýta samfélagsmiðla við leiðsögn á vinnustað.
- Verið sammála um hvaða smáforrit á að nota.
- Komið ykkur saman um hvaða efni á að nýta, texta, myndir, samtöl, myndbönd og fl.
- Verið viss um að allir viti af hverju er verið að nýta samfélagsmiðla í tengslum við leiðsögn á vinnustað.
- Skýrið út kosti aðferðanna fyrir nemum, starfsmentorum og kennurum.
- Veitið notendum aðstoð og stuðning eins og þarf til að þeir geti byrjað að nýta samfélagsmiðilinn. Tryggið að allir hafi aðgang að einhverjum til að spyrja og leita til um aðstoð.
- Spyrjið starfsmentora og nemendur um það hvaða smáforrit þau þekkja og reynið að velja eitt af þeim til að nota við leiðsögn á vinnustað.
- Byrjið á að nota lítil skref og hafið hlutina einfalda.
- Munið að samfélagsmiðlar koma ekki og ættu ekki að koma í staðinn fyrir það að hitta fólk augliti til auglitis.
- Verið jákvæð.