Facebook er bandarískur miðill fyrir samskipti og til að mynda félagsnet. Fyrirtækið hefur höfuðstöðvar í Menlo Park í Kaliforníu. Vefsíða þeirra var sett upp 4. febrúar 2004 af Mark Zuckerberg ásamt nokkrum samnemendum í Harvard Háskóla. Facebook er líklega frægasti og mest notaði samfélagsmiðillinn. |
|
|
Kostir::
- Notað mjög víða og margir skilja hvernig kerfið virkar.
- Flest fólk hefur nú þegar aðgang að smáforritinu og þurfa litla þjálfun.
- Mjög sveigjanlegt varðandi innihald, texta, myndir, myndbönd og fl.
- Ekki er nauðsynlegt að vita netfang og símanúmer móttakanda svo hægt er að halda persónulegri fjarlægð og næði.
- Hægt er að mynda lokaða hópa vegna náms og til að skiptast á upplýsingum.
- Hægt er að senda einkaskilaboð til að hafa samskipti og veita endurgjöf.
- Hægt er að fylgjast með virkni einstakra þátttakenda og fylgjast með samræðum innan hóps.
Hindranir |
Lausnir |
Ungt fólk notar það ekki, Facebook er orðið gamaldags. |
Jafnvel þótt að þeir séu ekki virkir notendur hafa flestir nemar, kennarar og starfsmentorar aðgang og hægt er að hvetja þá til að nýta Facebook vegna náms og þjálfunar. Sérstaklega ef búið er að að skýra út kosti þess að nota það í þeim tilgangi. |
Sumt fólk neitar að nota Facebook við vinnutengda hluti. |
Ef við upplýsum notendur um möguleikana sem lokaðir hópar veita og hvernig þeir hjálpar þeim við að leiðbeina og styðja nema er líklegra að notendurnir gangi til liðs við Facebook hópinn sem þú býrð til. |
Önnur virkni á Facebook getur truflað þig við samskipti og verkefnavinnu í gegnum Facebook. |
Hægt er að slökkva á eða takmarka tilkynningar um virkni. Komið ykkur saman um vinnulag og vinnusiðferði og reiknið með að flestir séu færir um að gera fleira en eitt í einu. |
Allt í einu ertu kominn með of marga hópa til að fylgjast með á sama tíma. |
Búið til hópa þar sem aðaltilgangurinn er samvinna, að finna lausnir á vandamálum og að skapa. Ef þú þarft að hafa samskipti við fáa í hópnum notaðu þá frekar Messenger / skilaboð á Facebook. Taktu burt og eyddu hópum sem eru orðnir úreltir og vinnunni í hópnum er lokið. |
Facebook er ekki öruggt. |
Það þarf að hafa skýrar viðmiðanir um hvað má birta. Komið ykkur saman um hvað er í lagi að setja inn og hvað ætti ekki að fara í gegnum Facebook. |
Tíu atriði og ábendingar um að nota Facebook við leiðsögn á vinnustað
- Búið til lokaðan hóp og bjóðið eingöngu þeim sem þurfa eða munu nýta sér að vera í hópnum.
- Sammælist um leiðbeiningar og tilgreinið markmið fyrir hópinn.
- Mótið skýrar reglur fyrir hópinn.
- Tryggið að allir hafi samþykkt að fara eftir reglum og viðmiðum fyrir hópinn.
- Kennið notendum að setja inn það sem má setja inn í hópinn, hvað má setja inn og hvað má ekki setja þar inn.
- Þjálfið notendur í rétta tungumálinu, hversu formlegt og hvaða hugtök á að nota, markmiðið er að þjálfa notendur líka í að nýta sérhæfð hugtök.
- Munið eftir að svona hópar eru ekki 100% öruggir og það þarf að velja vel hvað er sett þar inn.
- Geymið allt sem sett er inn (Gæti þurft að útbúa geymslu í öðru kerfi til að eiga t.d. öll samskipti við ákveðna nema).
- Notið Messenger hlutann til að senda einkaskilaboð til ákveðinna notenda.
- Verið sammála um og tryggið að allir viti hvenær hópnum verður lokað / hann lagður niður.