Instagram er samfélagsmiðill í eigu Facebook og er sérstaklega fyrir myndir og myndbönd. Instagram gerir notendum kleift að setja inn myndir og myndbönd, sem hægt er að breyta með mismunandi síum, skipuleggja með myllumerkjum og setja inn staðupplýsingar. Hægt er að stilla aðganginn og hafa hann opinberan eða samþykkja fylgjendur. Notendur geta skoðað og flokkað innihald hjá öðrum notendum eftir merkjum og stöðum og geta lækað það sem þeir skoða. Einnig er hægt að setja inn athugasemdir við myndir og myndbönd. Í Instagram er líka skilaboða og samskiptakerfi, hægt er að hafa margar myndir og myndbönd í einni birtingu. Einnig er hægt að setja upp sögur með svipuðum hætti og gert er í Snapchat sem er megin samkeppnisaðili Instagram. Snapchat gerir það kleift að birta myndir og myndbönd í röð og tengslum við aðrar birtingar og efnið er aðgengilegt í 24 klukkustundir. |
|
|
Kostir:
- Við teljum að ekki sé hægt að nota Instagram eitt og sér við vinnustaðaþjálfun en það er auðvelt að nota það með öðrum á borð við WhatsApp, Messenger eða Facebook.
- Það er auðvelt að nota Instagram ásamt Facebook um leið og ákveðið er hverju skuli deillt á Instagram og samtímis á Facebook.
- Getur verið nokkuð öruggt ínotkun ef þú notar ekki millumerki.
- Vinsælt meðal ungs fólks.
- Hægt að nota á marga vegu.
- Aðeins notað á símum eða snjalltækjum.
- Hægt er að skoða Instagram á tölvum.
Hindranir |
Lausnir |
Þú getur aðeins talað við eina manneskju í einu. |
Búið til lokaðan hóp þar sem þið getið öll talað saman. |
Annar notandi getur deilt því sem þú hefur birt á WhatsApp, Messenger, Facebook svo öryggis þarf að gæta |
Á sama hátt og þegar notuð eru önnur kerfi er mikilvægt að sammælast um leiðbeiningar og reglur um notkun. |
Vitum ekki hvað við eigum að birta og á hvað á að leggja áherslu |
Kynnið fyrir notendum hvers konar myndir/myndbönd skal birta og kennið þeim hvernig á að skrifa athugasemdir til að það hafi hvetjandi áhrif. |
Tíu atriði og ábendingar um að nota Instagram við leiðsögn á vinnustað
- Búið til lokaðan hóp og bjóðið aðeins þeim sem eiga að vera í hópnum.
- Búið til leiðbeiningar/markmið fyrir hópinn.
- Setjið reglur fyrir hópinn.
- Gangið úr skugga um að allir viti hvernig forritið virkar og hvernig á að nota millumerki.
- Kynnið fyrir notendum hvernig skjöl, myndir, vefslóðir og myndbönd skulu birt og hvað má ekki birta.
- Notið röð mynda (allt að 10) til að sýna þjálfun á vinnustað og fá endurgjöf.
- Verið meðvituð um að forritið er ekki 100% öruggt svo vandið það sem þið deilið með hópnum.
- Notið myndbönd til að sýna hápunkta þjálfunarinnar eða til að fá endurgjöf.
- Setjið samskiptareglur um hvernig og við hvað á að skrifa athugasemdir.
- Sammælist um hvenær loka á hópnum