Nám |
Samskipti |
Annað |
Þetta er nútímaleg gagnvirk aðferð við nám þar sem kennarar geta enn frekar fylgst með náminu. |
Þetta er auðveld, sveigjanleg og vænleg leið fyrir kennara að vera í reglulegum tengslum við starfsmentor og nema. |
Þetta veitir kennurum tækifæri til að kynnast vinnustaðnum betur þegar leiðsögn á vinnustað verður gagnsærri og opnari. |
Þegar leiðsögn á vinnustað verður gagnsærri hjálpar það kennurum að styðja nema svo þeir nái meiri árangri. |
Ferlið verður að raunverulegri samvinnu það sem kennarar, starfsmentorar og nemar geta unnið og skipulagt námsvinnuna í sameiningu og leyst vandamál ef og þegar þau koma upp. |
Leiðsögn á vinnustað verður hópstarf. |
Það verður auðveldara að tryggja að markmiðum námskrárinnar / námsins verði náð þegar smáforritin auðvelda samskiptin og auka gagnsæið |
Þetta veitir kennurum tækifæri til að búa til hópa sín á milli þar sem hægt er að lýsa vandamálum, skiptast á upplýsingum og góðum ráðum um viðbrögð og vinnubrögð. |
|
Gerir kennurum kleift að læra og þróa færni sína þegar þeir eru í meiri tengslum við leiðsögn á vinnustað og þróa líka sinn þátt í vinnustaðanáminu. |
Notast er við miðil sem nemendur þekkja og það ýtir undir tíðari og opnari samskipti og samræðu. |
- |
Hér eru nokkrar hugsanlegar hindranir og hvernig kennarar geta komist framhjá þeim.
Hindrun |
Lausn |
Kennurum gæti þótt erfitt að afhenda öðrum stjórn á ferlinu eða hlutum þess. |
Við þurfum að gera kennara meðvitaða um að samfélagsmiðlar eru tæki en ekki ógn. Þeir koma ekki í stað heimsókna og beinna samskipta. Það að nota mismunandi smáforrit hjálpar kennurum að undirbúa heimsóknirnar og gerir beinu samskiptin uppbyggilegri og mikilvægari. Kennarar þurfa að ná að verða öruggir í að nota mismunandi smáforrit og skólarnir ættu að hvetja þá til að nota nákvæmar leiðbeiningar um hvernig á að nota samfélagsmiðlana. |
Ótti um að það að nota samfélagsmiðla vegna vinnustaðanáms trufli einkalíf þeirra. |
Nota aðskilda síma vegna vinnu og einkalífs eða síma með tvö símkort. Búa til aðskilda notendur t.d. á Facebook, Instagram og slíku. |
Við erum ekki með búnaðinn sem þarf (snjallsíma, spjaldtölvu, fartölvu). |
Ef skóli ákveður að nota samfélagsmiðla vegna leiðsagnar á vinnustað eru það hagsmunir skólans að lána búnað og þjálfa kennara, starfsmentora og nemendur í að nota hann. Notið smáforrit sem hægt er að nota bæði á snjallsíma og tölvur ef einhver aðilinn er bara með annan kostinn. |
Okkur finnst ekki að samfélagsmiðlar séu öruggir í svona notkun |
Það eru alltaf fólgnar hættur í því að nota samfélagsmiðla og þess vegna þurfa að vera skýrar reglur og viðmið um það hvað má birta. Samningur eða sammæli um notkun miðlanna þarf að vera fyrir hendi í byrjun tímabils. Mikilvægt er að setja upp þjálfun um það hvað má gera og hvað ekki. |
Ég þarf að vera á vakt allan sólarhringinn alla daga vikunnar. |
Áður en vinnustaðanám hefst þurfa allir aðilar að samþykkja á hvaða tímum er hægt að ætlast til að fólk sé í samskiptum um vinnustaðanámið. Tímaramma aðila þarf að virða. Hvetjið til þess að miðlarnir séu nýttir reglulega svo að notkunin verði hluti af venjulegum vinnudegi. |
Aldursmunur, munur milli kynslóða og munur á tæknilegri færni mun gera notkun samfélagsmiðla erfiða. |
Notið Youtube myndskeið til að læra á miðlana. Biðjið einhvern sem notar miðlana að kenna ykkur. Ef hægt er notið miðil sem allir þekkja. Róm var ekki byggð á einum degi þannig að það er allt í lagi að læra smám saman. Hvetjið þá sem eru í fararbroddi í skólanum eða á vinnustaðnum til að vera í hlutverki brautryðjenda til að sýna öðrum góð vinnubrögð. |
Ég hef ekki við að fylgjast með breytingum og uppfærslum á smáforritunum. Þær útgáfur sem eru ókeypis geta verið takmarkaðar. |
Verið meðvituð um uppfærslur, veljið sjálfvirkar uppfærslur. Þegar mögulegt er notist við sömu útgáfu á meðan vinnustaðanámið stendur hjá ákveðnum hópi nema. |
Hvað ef síminn týnist, verður straumlaus, símanum er stolið eða ekki er aðgangur að þráðlausu neti? |
Þegar við notum samfélagsmiðla eru gögnin geymd í skýi og týnast þar af leiðandi ekki. Við komumst í þau aftur þegar við skráum okkur inn í önnur tæki eða á þráðlaust net. |
Ekki er hægt að ætlast til þess að ég sem kennari noti mörg mismunandi smáforrit. |
Veldu til dæmis fimm smáforrit sem þú þekkir og spurðu starfsmentora hvað þeir kannast við og vilja nota og veldu það sem báðir aðilar þekkja. |