Nám |
Samskipti |
Annað |
Gefur kost á gagnvirku námsferli sem styður við nýjungar. |
Nemar eru vanir að hafa samskipti gegnum smáforrit / stafræna miðla |
Tengir saman nám og vinnu. |
Eykur gæði námsins og kemur fram í betri árangri nemenda / betri einkunnum. |
Gefur þeim feimnu stökkpall til að tjá sig og ætti að efla sjálfstraust þeirra þegar þeir fá rödd og einhver heyrir og / sér til þeirra á samfélagsmiðli. |
Hægt að nýta til að útbúa möppu með myndum (t.d. ferilmöppu) með myndum og myndskeiðum með því að nýta snjalltæki og miðla. |
Hvetur nema til náms þegar þeir fá stöðuga endurgjöf og stuðning. |
Neminn fær stöðuga endurgjöf, stuðning og hvatningu. |
Auðvelt og einfalt að nota |
Gerir námið gagnsærra og auðveldara að koma auga á það/sjá árangur |
Value |
Það sem nemar læra er sýnilegra og þeir fá meiri viðurkenningu á því gegnum leiðsögnina á vinnustaðnum |
Hér eru nokkrar mögulegar hindranir og hvernig nemar geta komist framhjá þeim.
Hindrun |
Lausn |
Skortur er á fagmáli um notkun samfélagsmiðla |
Við þurfum að kenna viðteknar venjur og hegðun þegar verið er að nota samfélagsmiðla og allir aðilar þurfa að taka þátt í að ræða og samþykkja að fylgja því. Grunnreglur og vinnuaðferðir þarf að samþykkja í byrjun. |
Ég þarf að vera á vakt allan sólarhringinn alla daga vikunnar |
Áður en vinnustaðanám hefst þurfa allir aðilar að samþykkja á hvaða tímum er hægt að ætlast til að fólk sé í samskiptum um vinnustaðanámið. Tímaramma aðila þarf að virða. Hvetjið til þess að miðlarnir séu nýttir reglulega svo að notkunin verði hluti af venjulegum vinnudegi. |
Við höfum ekki tækin sem þarf, snjallsíma, spjaldtölvu eða fartölvu. |
Ef sá sem skipuleggur vinnustaðanám ákveður að nota samfélagsmiðla við leiðsögn á vinnustað er það í þágu viðkomandi aðila að lána búnað og þjálfa nema og starfsmentora í að nota hann. Notið smáforrit sem eru til bæði fyrir snjallsíma og tölvur ef einhver hefur bara aðgang að annarri gerð tækjanna. |
Við höldum að samfélagsmiðlar sé ekki öruggir í notkun. |
Notkun samfélagsmiðla er aldrei fullkomlega örugg og það þarf að fylgja leiðbeiningum um það hvað á að setja þar inn. Til þarf að vera samkomulag um það hvernig á að nýta samfélagsmiðlana. Sjáið til þess að viðkomandi fái þjálfun í því hvað má gera og hvað ekki. |
Það er ekki hægt að nota samfélagsmiðla innan vinnuumhverfisins. |
Ef þið sýnið hvernig hægt er að nota samfélagsmiðlana er líklegt að neikvæðar raddir hljóðni og jákvæð viðbrögð verði meira áberandi. Gerið samkomulag um það hvar og hvenær má nota samfélagsmiðlana (t.d. hlé, kaffihlé) |
Neminn mun birta til dæmis myndir og viðkvæm mál vinnustaðarins. |
Í upphafi vinnustaðanámsins þarf að tryggja að allir viti hvað má birta í tengslum við námið. |
Við megum ekki nota samfélagsmiðla vegna þess að reglur vinnustaðarins hindra slíkt |
Setjist niður með forsvarsfólki vinnustaðar og skoðið hvort hægt er að gera undantekningar á þessu og gerið samkomulag um það við hvaða aðstæður má nota samfélagsmiðla. Bendið á að ef til vill ætti að endurskoða reglur vinnustaðarins um þessi mál. |
Hvað ef síminn týnist, verður straumlaus, símanum er stolið eða ekki er aðgangur að þráðlausu neti? |
Þegar við notum samfélagsmiðla eru gögnin geymd í skýi og týnast þar af leiðandi ekki. Við komumst í þau aftur þegar við skráum okkur inn í önnur tæki eða á þráðlaust net. |