Nám |
Samskipti |
Annað |
Þetta er nútímaleg gagnvirk aðferð við nám og býður uppá gagnsætt samvinnuferli við nám og leiðsögn. |
Þetta er auðveld og hagkvæm leið fyrir starfsmentorinn að vera í sambandi við kennara/umsjónarmann vinnustaðanámsins. |
Þetta er gagnsætt ferli og hægt að viðurkenna sem kennsluaðferð. |
Vegna þess að starfsmentorarnir fá stuðning frá kennurum verða mentorarnir öflugri sem stuðningur við nám nemanna. |
Þegar samskiptin verða meiri og betri mun starfsmentornum ekki líða eins og hann sé einn ef upp koma vandamál eða hann þarf stuðning frá kennaranum.. |
Starfsmentorarnir munu ekki finnast þeir standa eins mikið einir og áður og finna meiri viðurkenningu á því sem þeir gera. |
Það er auðveldara að fylgjast með námskrá og námsmarkmiðum þegar smáforrit gerir samskiptin auðveldari og gagnsærri. |
Það gefur starfsmentorunum tækifæri til að búa til lokaða hópa þar sem þeir geta rætt málin, velt upp vandamálum og gefið góð ráð |
Leiðsögn á vinnustað verður hópvinna. |
Gefur kost á því að starfsmentorar geti deilt sin í milli og komið til skila því hvað nemar eru að gera, hvað nemar og starfsmentorar hafa lært og í hverju þeir þurfa meiri þjálfun og þróun sem starfsmentorar. |
- |
- |
Hér eru nokkrar mögulegar hindranir og ábendingar um það hvernig starfsmentorar geta komist framhjá þeim.
Hindrun |
Lausn |
Það er ekki hægt að nota þetta vegna þess að neminn fær leiðsögn hjá fleiri en einum og/eða fengið annan starfsmentor. |
Ef skipt er um starfsmentor er mikilvægt að viðkomandi fái skýrslu um mál nemans og stöðu í náminu. Sjáið til þess að nýjum aðila sé bætt inn í samfélagsmiðilinn og fái að vita hvernig hann er notaður og viti til hvers er ætlast. Sjáið til þess að allir sem koma að vinnustaðanáminu fái að vita um breytingar og hvernig það gæti haft áhrif á leiðsögnina. |
Ótti um að notkun samfélagsmiðla rugli saman vinnu og einkalífi |
Nota aðskilda síma vegna vinnu og einkalífs eða síma með tvö símkort. Búa til aðskilda notendur t.d. á Facebook, Instagram og slíku. |
Við erum ekki með búnaðinn sem þarf (snjallsíma, spjaldtölvu, fartölvu). |
Ef skóli ákveður að nota samfélagsmiðla vegna leiðsagnar á vinnustað eru það hagsmunir skólans að lána búnað og þjálfa kennara, starfsmentora og nemendur í að nota hann. Notið smáforrit sem hægt er að nota bæði á snjallsíma og tölvur ef einhver aðilinn er bara með annan kostinn. |
Okkur finnst ekki að samfélagsmiðlar séu öruggir í svona notkun. |
Það eru alltaf fólgnar hættur í því að nota samfélagsmiðla og þess vegna þurfa að vera skýrar reglur og viðmið um það hvað má birta. Samningur eða sammæli um notkun miðlanna þarf að vera fyrir hendi í byrjun tímabils. Mikilvægt er að setja upp þjálfun um það hvað má gera og hvað ekki. |
Ég þarf að vera á vakt allan sólarhringinn alla daga vikunnar |
Áður en vinnustaðanám hefst þurfa allir aðilar að samþykkja á hvaða tímum er hægt að ætlast til að fólk sé í samskiptum um vinnustaðanámið. Tímaramma aðila þarf að virða. Hvetjið til þess að miðlarnir séu nýttir reglulega svo að notkunin verði hluti af venjulegum vinnudegi. |
Aldursmunur, munur milli kynslóða og munur á tæknilegri færni mun gera notkun samfélagsmiðla erfiða. |
Notið Youtube myndskeið til að læra á miðlana. Biðjið einhvern sem notar miðlana að kenna ykkur. Ef hægt er notið miðil sem allir þekkja. Róm var ekki byggð á einum degi þannig að það er allt í lagi að læra smám saman. Hvetjið þá sem eru í fararbroddi í skólanum eða á vinnustaðnum til að vera í hlutverki brautryðjenda til að sýna öðrum góð vinnubrögð. |
Ég hef ekki við að fylgjast með breytingum og uppfærslum á smáforritunum. Þær útgáfur sem eru ókeypis geta verið takmarkaðar. |
Verið meðvituð um uppfærslur, veljið sjálfvirkar uppfærslur. Þegar mögulegt er notist við sömu útgáfu á meðan vinnustaðanámið stendur hjá ákveðnum hópi nema. |
Hvað ef síminn týnist, verður straumlaus, símanum er stolið eða ekki er aðgangur að þráðlausu neti? |
Þegar við notum samfélagsmiðla eru gögnin geymd í skýi og týnast þar af leiðandi ekki. Við komumst í þau aftur þegar við skráum okkur inn í önnur tæki eða á þráðlaust net. |
Ekki er hægt að ætlast til þess að ég sem kennari noti mörg mismunandi smáforrit. |
Veldu til dæmis fimm smáforrit sem þú þekkir og spurðu starfsmentora hvað þeir kannast við og vilja nota og veldu það sem báðir aðilar þekkja. |
Það er ekki hægt að nota samfélagsmiðla innan vinnuumhverfisins. |
Ef þið sýnið hvernig hægt er að nota samfélagsmiðlana er líklegt að neikvæðar raddir hljóðni og jákvæð viðbrögð verði meira áberandi. Gerið samkomulag um það hvar og hvenær má nota samfélagsmiðlana (t.d. hlé, kaffihlé). |
Neminn mun birta til dæmis myndir og viðkvæm mál vinnustaðarins. |
Í upphafi vinnustaðanámsins þarf að tryggja að allir viti hvað má birta í tengslum við námið. |
Við megum ekki nota samfélagsmiðla vegna þess að reglur vinnustaðarins hindra slíkt |
Setjist niður með forsvarsfólki vinnustaðar og skoðið hvort hægt er að gera undantekningar á þessu og gerið samkomulag um það við hvaða aðstæður má nota samfélagsmiðla. Bendið á að ef til vill ætti að endurskoða reglur vinnustaðarins um þessi mál. |
Við getum ekki neytt starfsmentorinn til að nota samfélagsmiðla. |
bÞað er ekki hægt að neyða einhvern til þess en hægt er að fræða og útskýra kostina sem fólgnir eru í því að nota samfélagsmiðla við leiðsögn með því að sýna hvernig það auðveldar og bætir samskiptin. |