Trello er verkefnastjórnunarlausn sem er á vefnum hannað af Fog Creek Software árið 2011. Trello er aðallega þekkt sem forrit til að stjórna verkefnum, stýra tilkynningatöflum í skólum ( búa til hugtakakort) og skipuleggja kennslu. Trello er verkefnastjórnunartæki þar sem samstarfsaðilar geta séð hvað er verið að vinna í, hver er að vinna það, og hvar í ferlinu verkið er statt. Í Trello getur þú búið til borð bæði til einkanota og fyrir hópa og jafnframt ákveðið hvort þau séu opin útávið eða lokuð. Fyrir vinnustaðaþálfun getum við búið til borð fyrir hópa sem eru aðeins sýnileg þeim sem eru í hópnum sem stendur að vinnustaðaþjálfuninni. |
|
|
Kostir
- Í Trello getur þú búið til borð til einkanota eða fyrir hópa og ákveðið hvort þau eru opin eða lokuð.
- Ókeypis útgáfan er nóg fyrir utanumhald fyrir vinnustaðanám.
- Í Trello getur þú búið til eins mörg borð og þú vilt og getur fengið aðgang að öðrum viðbótum eins og dagatali.
- Þú getur myndrænt raðað verkefnum og notað fyrir mismunandi nemendur.
- Aðlaðandi umhverfi þar sem þú getur breytt bakgrunninum á borðunum o.s.frv.
- Ef þú vilt er hægt að búa til t.d. gátlista yfir hvaða verkefni á að vinna.
- Það er hægt að tengja það við tölvupóst.
- Hægt að nota það á mismunandi vegu.
- Hægt að nota á tölvum.
Hindranir |
Lausnir |
Erfitt að sjá framvindu verkefna. |
Allir þurfa að uppfæra sín verkefni reglulega. |
Getur verið villandi að hafa mismunandi viðmót (Ipone og Android). |
Viðmótið gæti verið mismunandi en það virkar eins. Leiðbeinandi vinnustaðanáms þarf að vera meðvitaður um þetta og aðstoða nemendur og starfsmentor um hvernig best er að nota Trello þrátt fyrir mismunandi viðmót. |
Endurgjöf er ekki persónuleg þar sem allir á borðinu geta séð hana. |
Allir þurfa að vera sammála um hvers konar endurgjöf má gefa í Trello, t.d. endurgjöf sem getur nýst öllum í vinnustaðaþjálfuninni. Persónuleg endurgjöf ætti að fara eftir öðrum leiðum t.d. auglitis til auglitis, í gegnum WhatsApp eða Messenger. |
Ókeypis útgáfan af Trello er alltaf að verða takmarkaðri og þú verður að uppfæra hana í “business class” ef þú vilt fá aðgang að fleiri aðgerðum. |
Eina af þremur samstarfsaðilunum verður að hafa uppfærslu til að hafa allar aðgerðirnar. Ef skólinn gerir það er hægt að fá 30% afslátt af uppfærðu útgáfunni. |
Tíu atriði og ábendingar um að nota Trello við leiðsögn á vinnustað
- Nota google aðganginn þinn þegar þú ert að búa til Trello aðgang.
- Ganga úr skugga um að allir kunni að nota Trello og ef einhver þekkir forritið ekki þarf að kenna þeim á það og upplýsa þá um kosti þess að nota Trello í vinnustaðaþjálfun.
- Sammælast um hvaða efni er sett á Trello og hvernig á að fjalla um það.
- Gefa ákveðinn rétt/leyfi til starfsmentora og nemenda.
- Búa til borð á tölvu, eftir það getur þú notað aðgang að Trello úr snjallsímanum þínum https://www.youtube.com/watch?v=sfOe9gljj38
- Búa til dagatal í Trello https://www.youtube.com/watch?v=CgXgFdBhaZQ
- Búa til gátlista sem sýnir hvað á að gera, hver á að gera hvað o.s.frv.
- Nota Trello til að halda námskeið á vefnum https://www.youtube.com/watch?v=IzVm4ptYxzs&list=PL4H_oPRK80z4069RS-Mt2zJJ1Ijg2QLZ9
- Taka upp námskeið á vefnum og deila þeim svo að þeir sem vilja/þurfa geti hlutstað/horft aftur á námskeiðið.
- Eftir að þú hefur lokið vinnustaðaþjálfuninni í Trello þá getur þú sett borðið í skjalasafn.