WhatsApp er í eigu Facebook. WhatsApp leyfir að senda textaskilaboð, símtöl, myndsímtöl, myndir og aðra miðla, skjöl og staðsetningu. Forritinu er stýrt úr snjallsíma en er jafnframt hægt að stýra öllu frá tölvu í gegnum vafrana Google chrome, Mozilla Firefox og Opera. Til að nota forritið í tölvu verður þú að hafa QR kóða í tölvunni þinni. Til að geta notað WhatsApp verður þú að hafa símanúmer. |
|
|
Kostir:
- WhatsApp er líklega eitt af þekktustu skilaboða smáforritunum.
- Notað víðsvegar um Evrópu.
- Flestir nota smáforritið nú þegar og þarfnast því lítillar þjálfunar.
- Hægt að nota bæði til einkanota og fyrir hópa sem spjall, til að hringja og hringja myndsímtöl.
- Auðvelt að setja inn myndbönd, texta, skjöl og myndir.
- Þú verður að vita símanúmer þeirra sem eru í hópnum - virkar úr síma í síma.
- Þú getur sett smáforritið upp í tölvunni þinni.
- Hægt að útbúa lokaðan hóp fyrir nám og til að deila upplýsingum með hópnum.
- Hægt að senda einkaskilaboð til ákveðinna einstaklinga t.d. umsagnir.
- Hægt að fylgjast með hverjir svara og fylgst með samtali hópsins.
Hindranir |
Lausnir |
Þú verður að vita símanúmer þeirra sem þú vilt hafa í WhatsApp hópnum því notendaaðgangurinn er tengdur sérstökum síma eða símanúmeri. |
Áður en þú stofnar hóp þarftu að ganga úr skugga um að allir þátttakendur hafi sótt smáforritið WhatsApp og þeir hafi látið þig hafa rétt símanúmer. |
Þú gætir týnt efni/sögunni þinni ef þú skiptir um síma ef þú kannt ekki að taka afrit af gögnunum þínum. |
Búið til Google aðgang og gerið eftirfarandi: Opnið WhatsApp, Veljið Menu> Settings > Chats > Chat backup. Farið á Google Drive og setjið upp hversu oft á að afrita aðganginn. Þú verður beðin um að velja Google aðgang þar sem þú vilt að gögnin þín verði geymd. Hér er vefslóð með myndbandi sem sýnir hvernig á að taka afrit af öllum gögnunum þínum á WhatsApp: https://www.youtube.com/watch?v=XnqnxKL60vc |
Þrátt fyrir að WhatsApp sé mikið notað þá nota ekki allar þjóðir það. |
Kynnið þeim kosti þess að nota WhatsApp og sýnið hversu auðvelt er að nota það. Athugið hvort þeir gætu hugsað sér að nota WhatsApp í vinnustaðaþjálfun. Ef þeir vilja ekki nota það veljið þá annað smáforritð t.d. Messenger. |
Allir notendurnir þurfa að hafa WhatsApp til að hafa samskipti. |
Aðstoðið notendur við að sækja WhatsApp smáforritið og hvetjið þá til að byrja að nota það. |
Þú getur týnst í öllum upplýsingunum sérstaklega ef það er mikið af þeim frá hópnum. |
Þú getur merkt sérstaklega þau innlegg sem eru mikilvæg með stjörnu. |
Tíu atriði og ábendingar um að nota WhatsApp við leiðsögn á vinnustað
- Notaðu vinnusnjallsíma ef þú ert með slíkan síma.
- Búðu til vinnutengda eða einkahópa í heimilisfanga/netfanga skránni.
- Vertu viss um að hafa símanúmer allra.
- Nauðsynlegt er að setja upp og fá samþykki allra um leiðbeiningar/markmið hópsins.
- Hvetja notendur tilað nálgast WhatsApp í pásum í vinnutíma eða í frítíma.
- Upplýsa notendur um það hvernig er hægt að bæta við skrám, myndum, slóðum og myndskeiðum og vera skýr um það hvaða gerðir af skrám, myndum, slóðum og myndskeiðum ætti að birta og hvað er ekki leyfilegt að birta.
- Hvetja notendur til að nota myndsímtöl þar sem þau eru persónulegri.
- Stilltu viðvaranir ef þú vilt ekki fá tilkynningu um öll skilaboð.
- Skannaðu QR kóðann inn á tölvuuna þína svo þú getir notað WhatsApp á tölvunni þinni.
- Sendu einkaskilaboð þegar nauðsynlegt er að hafa samband við ákveðna einstaklinga.