|
|
Kostir:
- Ef þú kannast við Facebook þá er þetta svipað.
- Þarfnast lítillar þjálfunar til að nota.
- Tvær útgáfur, önnur frí og hin kostar nema ef um er að ræða menntastofnanir.
- Mjög sveigjanlegt hvað varðar að nota mismunandi miðla, texta, myndir, myndbönd og fl.
- Ekki er nauðsynlegt að vita netfang og símanúmer móttakanda svo hægt er að halda persónulegri fjarlægð og næði.
- Hægt er að mynda lokaða hópa vegna náms og til að skiptast á upplýsingum.
- Hægt er að senda einkaskilaboð til að hafa samskipti og veita endurgjöf.
- Hægt er að fylgjast með virkni einstakra þátttakenda og fylgjast með samræðum innan hóps.
- Fyrirtækið/stofnunin sem notar forritið á innihaldið ef það vill gera kröfu um það.
Hindranir |
Lausnir |
Workplace er minna þekkt en Facebook |
Það þarf að upplýsa notendur um kosti þess að nota Workplace. Til dæmis er það öruggara en Facebook og þú átt innihaldið ef þú vilt, Workplace þarf ekki að eiga innihaldið. Þú ættir líka að kynna Workplace sem hugsanlegan valkost við Facebook. Sum fyrirtæki gætu frekar viljað nota Workplace af því að það er álitið faglegra og öruggara en aðrir samfélagsmiðlar. |
Af hverju að nota Workplace þegar við höfum Facebook. |
Workplace er notað í vinnunni og það auðveldar að greina að vinnu og einkalíf. Fyrirtækið á gögnin ef hann óskar eftir því. |
Tíu atriði og ábendingar um að nota Workplace við leiðsögn á vinnustað
- Búið til lokaðan hóp og bjóðið eingöngu þeim sem þurfa eða munu nýta sér að vera í hópnum.
- Tengið við aðra hópa sem eru gagnlegir fyrir leiðsögn á vinnustað.
- Mótið skýrar reglur fyrir hópinn.
- Sendið einkaskilaboð með WorkChat þegar nauðsynlegt er að halda uppi einkasamskiptum.
- Sendið boð um þátttöku með því að senda slóðir til þeirra nema, kennara og starfsmentora sem koma að þjálfuninni.
- Búið til spurningalista, kannanir og setjið upp fundi í gegnum Workplace.
- Kynnið kostina við að nota Workplace.
- Komið ykkur saman um samskiptareglur, hvað má birta og um öryggismál áður en þið bjóðið þátttakendum í hópinn, kynnið þeim hvernig á að nota Workplace.
- Verið sammála um og tryggið að allir viti hvenær hópnum verður lokað / hann lagður niður.
- Biðjið um að eiga ykkar framlag í Workplace.