|
|
Kostir:
- Svipað og Tello en auðveldara í notkun.
- Það er notendavænt og þægilegt í notkun.
- Hægt að nota á tölvu, snjallsíma og snjalltæki.
- Hægt er að stýra verkefnum og setja skiladaga eða áminningar um að ljúka verkefnum.Þetta á til dæmis við um ýmis verkefni, athugasemdir, skrár sem á að hlaða upp og áminningar til nema.
- Hægt er að auðkenna verkefni með myllumerki.
- Hægt er að senda e-mail á [email protected]
- Hægt er að merkja að verkefnum sé lokið jafnóðum.
- Hægt er að bæta við skrám og gefa endurgjöf í athugasemdum.
- Hægt er að búa til lokaðan hóp fyrir nám/til að deila.
- Athugasemdir og endurgjöf er send til alls hópsins.
- Hægt er að fylgjast með hver er að bregðast við og fylgjast með umræðum í hópnum
Hindranir |
Lausnir |
Nauðsynlegt er að vita hvaða netfang þátttakendur notuðu til að skrá sig í Wunderlist því þátttökubeiðni er send á það netfang |
Óskið eftir netfangi til að nota í Wunderlist ef ætlunin er að nota það við vinnustaðanámið. |
Endurgjöfin er ekki í einkaskilaboðum og því gæti starfsmentor ekki viljað senda umsögn á allan hópinn. |
Það er möguleiki á að senda tölvupóst frá Wunderlist til nemenda. Ef verið er að senda þannig að allir geti séð þá ætti að nota almenna umsögn í samræmi við þær leiðbeiningar sem ákveðnar voru um endurgjöf og hvað skuli forðast. |
Það er aðeins hægt að nota Wunderlist í Windows 10 eða nýrri uppfærslur |
Hægt er að nota forritið bæði í síma og snjalltækjum. |
Einhverjir gætu talið að það væri erfitt að læra að nota Wunderlist ef þeir eru ekki vanir að nota svipuð smáforrit. |
Kennið notendunum að nota forritið og upplýsið þá um kosti þess. Seljið hugmyndina um að nota Wunderlist. Látið vita að þeir geti haft samband við ykkur ef þeir þurfa aðstoð. |
Tíu atriði og ábendingar um að nota Wunderlist við leiðsögn á vinnustað
- Stofnið hóp þar sem allir eru sammála um samskipti og leiðbeiningar.
- Notið Wunderlist gegnum Facebook aðgang eða Google aðgang.
- Sammælist um hvaða viðfangsefnum skuli vera deilt/rætt um gegnum Wunderlist.
- Búið til einkastillingar og tilkynningar miðað við hversu oft þú notar þær.
- Skoðið Wunderlist aðganginn ykkar í auðum tíma/frítímanum í vinnunni.
- Sammælist um hvernig skjölum, myndum og vefslóðum skuli vera deilt og hvað er ekki leyfilegt að birta.
- Búið til aðskilinn aðgang fyrir vinnu og hópa.
- Gangið úr skugga um að allir muni sjá umsagnirnar, ekki vera persónuleg.
- Sendið áminningu um verkefni sem þarf að ljúka.
- Notið tengingu við önnur smáforrit s.s. myndbandssímtöl.